Fara á forsíđu
Villidýr á verđi

Prenta Um Tiger

Hvað er Tiger?
Tiger er dönsk verslunarkeðja með mikið úrval af vörum fyrir heimilið, leik og störf. T.d. eldhúsvörur, krydd, leikföng, snyrtivörur, afþreyingarvörur, skrifstofuvörur, DVD og margt, margt fleira.

Tiger opnaði sína fyrstu verslun í Kaupmannahöfn 1995 og hefur allar götur síðan tileinkað sér að bjóða upp á ódýrar vörur sem standast væntingar viðskiptavinarins. Tiger var mjög vel tekið og opnaði í kjölfarið fleiri verslanir víða um Danmörku. Fyrsta erlenda verslun Tiger var opnuð á Íslandi árið 2001. Í byrjun var allt selt á 200 eða 400 krónur, en nú hefur vöruúrvalið breikkað svo um munar og verðbilið stækkað en áherslan er enn sú sama; að selja góðar, nytsamlegar og skemmtilegar vörur á lágu verði. Tiger starfrækir nú yfir 180 verslanir víðs vegar um heim og fer ört vaxandi.

Íslensku Tiger verslanirnar eru í eigu:

Zebra A/S
Rådhuspladsen 59, 3.tv
1550 København V
 
Sími +33 327 328
Fax +33 327 329
CVR Nr. 15690488 


Bein leið
Á hverjum degi kemur mikill fjöldi viðskiptavina í verslanir okkar og það gerir okkur kleift að kaupa vörur í miklu magni. Við ferðumst víða og kaupum inn vörur sem eru sérhannaðar og merktar okkar vörumerki. Öll okkar innkaup koma beint frá framleiðandanum og því er enginn milliliður sem greiða þarf aukalega. Þetta gerir okkur fært að selja vörurnar ódýrt.

Hegðunarreglur Tiger
Allir framleiðendur sem selja vörur til Tiger skrifa undir samning ”Code of Conduct” við fyrirtækið. Með samningnum skuldbindur framleiðandinn sig við að fara eftir þeim ákvæðum sem Tiger setur fram. Í ákvæðum samningsins skuldbindur framleiðandinn sig að stunda hvorki barna- né vinnuþrælkun eða aðra misnotkun á vinnukröftum. Reglurnar eru í samræmi við mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna og grunngildi hans, sérstaklega þeim sem snýr að atvinnu og er unnið að forskrift ILO (International Labour Organisation). Sjá nánar á hegðunarreglur Tiger.

Kröfur um gæði
Við viljum að viðskiptavinir okkar eigi kost á að versla frumlegar og góðar vörur á sanngjörnu verði og erum með miklar kröfur um gæði þeirra vara. Það er okkar kappsmál að viðskiptavinurinn sé ánægður með vöruna sem hann kaupir hjá okkur. Tiger er í góðu samstarfi við danskt fyrirtæki, Eurofins, sem ráðleggur okkur og gerir gæða- og öryggiskannanir á vörum okkar.

Skilaréttur
Við leggjum áherslu á að verslanir okkar séu einfaldar og að viðskiptavinir okkar geti skoðað og handfjatlað vörurnar í hlýlegu og notalegu umhverfi. Við erum ávallt tilbúin að svara spurningum um vörurnar og einbeitum okkur að því að þú fáir góða þjónustu. Ef varan uppfyllir ekki væntingar þínar, viljum við gjarnan að þú komir með hana í verslunina ásamt kassakvittun. Þú hefur alltaf rétt á því að skila vöru ef hún er gölluð.

Tiger í útlöndum
Tiger mun í lok ársins 2012 hafa meira en 180 verslanir í Danmörku og víðsvegar um heiminn. Þú getur skoðað í hvaða löndum Tiger er á tiger-stores.com. Tiger er ekki rekið sem sérleyfissalar (franchising) hvorki í Danmörku eða í öðrum löndum.

Hefur þú spurningar?

Sendu okkur spurningar um verslanir okkar, vörurnar eða heimasíðuna með því að smella hér.