Fara á forsíđu
Villidýr á verđi

Prenta Hegđunarreglur Tiger

HEGÐUNARREGLUR TIGER (CODE OF CONDUCT) júlí 2011

1.  Okkar viðskipti og gildi

Tiger er danskt vörumerki sem flytur inn vörur frá framleiðendum og fulltrúum í Asíu jafnt sem Vesturlöndum. Vörur Tiger eru seldar í gegnum verslanir okkar í Danmörku og öðrum Evrópulöndum.

Hugmyndin hjá Tiger er að selja frumlegar en einfaldar vörur í háum gæðum og á mjög sanngjörnu verði. Það er okkur mikilvægt að verslanir okkar séu einfaldar í hönnun og auðvelt sé að leggja mat á vörurnar okkar.

Tiger hefur einsett sér að stunda viðskipti með siðlegum og sómasamlegum hætti. Það er okkar siðferðislega skylda og mikilvægur þáttur í gildismati fyrirtækisins. Hvað Tiger varðar, merkir samfélagsábyrgð fyrirtækja („corporate social responsibility“ – CSR) að við verðum stöðugt að stefna að bættum stöðlum á sviði vinnumála; öryggis, heilsu- og umhverfisverndar – jafnt á eigin vinnustað sem og hjá okkar birgjum.

Einnig trúum við því að háir staðlar um samfélagsábyrgð fyrirtækja (CSR) skipti sköpum þegar móta á sjálfbært, nútímavætt og samkeppnishæft fyrirtæki. Samfélagsábyrgð fyrirtækja (CSR) er mikilvægur samkeppnisþáttur fyrir Tiger og birgja okkar. Því viljum við efla samstarf við birgja okkar með opnum samskiptum og sameiginlegum áhuga á að þróa viðskipti okkar og njóta góðs af því að uppfylla auknar kröfur um samfélagsábyrgð fyrirtækja (CSR).


 2.  Okkar nálgun

Allir okkar birgjar verða að skrifa undir okkar siðareglur (code of conduct) og virða þær í meginatriðum. En við viðurkennum einnig að refsingar og stýringar eru ekki besta leiðin til að viðhalda háum siðferðislegum viðmiðum hjá okkar birgjum. Því er það okkar markmið að styrkja samstarf og langtíma viðskiptasamband við helstu birgja. Og við erum tilbúin til að aðstoða okkar birgja við að bæta staðla á sviði vinnumála; öryggis, heilsu- og umhverfisverndar og við að framfylgja skilmálum starfsreglna okkar (code of conduct).

Við óskum þess að þurfa ekki að binda enda á samstarf okkar við birgja sem ekki fylgja okkar starfsreglum (code of conduct) og munum ekki gera það svo lengi sem birgjar sýni einlægan vilja til að framfylgja stöðlum á endanum. Hins vegar munum við ekki stunda viðskipti við birgja ef ekki er talið að hann muni geta framfylgt þessum stöðlum í framtíðinni.

Tiger áskilur sér réttinn til að fylgjast með eftirfylgni birgja okkar og mun slíkt eftirlit fara fram með fyrirfram ákveðnum og óvæntum heimsóknum eða með úttektum (audit) sem framkvæmdar eru af utanaðkomandi aðilum sem Tiger útnefnir.


3.  Helstu siðareglur

Tiger gerir ráð fyrir því að birgjar fylgi að lágmarki staðbundinni löggjöf og eftirfarandi stöðlum, allt byggt á alþjóðlegum viðurkenndum lágmarksstöðlum fyrir mannréttindi, vinnulöggjöf og umhverfissjónarmið, svo sem mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna, helstu samþykktir Alþjóðavinnumálastofnunarinnar og yfirlýsing Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.

Tiger leggur áherslu á að starfsreglur (code of conduct) eiga við allt starfsfólk sem starfa beint eða óbeint undir birgjum Tiger að meðtöldu samningsbundnu og árstíðarbundnu starfsfólki. Tiger treystir á að birgjar muni grípa til viðeigandi ráðstafana til að tryggja að skilmálar og réttindi sem kveðið er á um í starfsreglunum (code of conduct) muni ná til allra samningsbundinna og árstíðabundinna starfsmanna.

Þrælkunarvinna 
Tiger samþykkir enga notkun á nauðungarvinnuafli og enginn starfsmaður mun þurfa að skilja skilríki eða persónuleg skjöl eftir hjá vinnuveitanda. Ráðningar á starfsfólki skulu vera í samræmi við lög og reglur á staðnum og fyrir skal liggja samningur (eða ráðningarbréf) sem einnig skal samræmast lögum.

Vinnutímar 
Birgjar skulu fylgja innlendum lögum og reglum iðnaðarins varðandi vinnutíma og yfirvinnu. Starfsmenn skulu fá orlof og frítíma í samræmi við viðeigandi reglur, hefðir og staðla.

Greiðslur 
Birgir skal tryggja að greidd laun samræmist ávallt lögum og lágmarksstöðlum og að þau séu greidd með reglulegu millibili. Yfirvinna skal greidd á hækkuðum taxta og birgir skal veita starfsfólki þau hlunnindi sem lög kveða á um.

Barnaþrælkun
Tiger er mótfallið barnaþrælkun af öllu tagi eða stuðningi við slíkt. Börn eða ungt starfsfólk má ekki setja í hættulegar, óöruggar eða heilsuspillandi aðstæður innan eða utan vinnustaðar.

Mismunun og viðurlög 
Tiger er alfarið á móti hvers kyns mismunun við ráðningar, þóknanir, aðgang að þjálfun, stöðuhækkanir, brottrekstur eða starfslok. Starfsfólk skal ekki sæta framkomu, s.s. bendingum, orðafari eða líkamlegri snertingu, sem mætti flokka sem kynferðislega áreitni, ógnun, misbeitingu eða misnotkun.

Félagafrelsi og kjarasamningar
Birgir skal virða rétt starfsfólks til að mynda félög að eigin vali og styðja starfsfólk sem nýta rétt sinn til gerðar kjarasamninga.

Heilsa og öryggi 

Birgir skal bjóða upp á öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi og gera viðeigandi ráðstafanir til að fyrirbyggja slys, meiðsli og heilsutap hjá starfsfólki.

Umhverfi
Birgir skal uppfylla staðbundna umhverfislöggjöf og beita sér með virkum hætti fyrir því að draga úr neikvæðum áhrifum á umhverfið.

Rekjanleiki og gögn hjá milliliðum
 
Milliliðir verða að sýna fram á skráða viðleitni við að uppfylla reglur um samfélagsábyrgð hjá eigin fyrirtæki (CSR) og í aðfangakeðjunni (supply chain) og þurfa að geta sýnt fram uppruna sinna vara.

Menningarnæmi 
Tiger mun virða hefðir, menningu og gildi þeirra landa sem við störfum í 


4. Hvernig við túlkum meginreglur okkar

Nauðungarvinna
Nauðungarvinna nær yfir alla vinnu sem ekki er unnin af frjálsum vilja eða vinnu sem krafist er sem greiðslu upp í skuld (ánauðarvinna (bonded labour)). Sanngjarnir og gegnsæir ráðningarsamningar sem ritaðir eru á tungumáli þess lands sem starfað er í eru góð leið til að sýna fram á að ekki sé um nauðungarvinnu að ræða. Allt starfsfólk á vegum Tiger og okkar birgja verða að vera með samning eða ráðningarbréf sem undirritað er bæði af vinnuveitanda og starfsmanni.

Séu starfsmenn neyddir til að skilja skilríki eða persónuleg skjöl eftir hjá vinnuveitanda heftir það ferðafrelsi starfsmanna, sem telst óheimilt. Starfsmönnum skal alltaf gert kleift að yfirgefa vinnusvæði að vakt lokinni.

Vinnustundir
Venjuleg vinnuvika skal skilgreind út frá landslögum og skal ekki reglulega fara yfir 48 klukkutíma á viku. Yfirvinna a skal skilgreind út frá landslögum en má ekki fara yfir 12 klukkutíma á viku. Yfirvinna verður að vera unnin af frjálsum vilja og starfsfólk skal eiga rétt á einum frídegi á viku að lágmarki. Vinnufrí nær yfir sjúkraleyfi/veikindafrí, árlegt orlof, fæðingarorlof, almenna frídaga o.s.frv.

Greiðslur

Vinnuveitendur skulu fylgja breytingum lágmarkslauna til að tryggja að starfsmönnum sé alltaf greidd lögbundin lágmarkslaun. Ef lágmarkslaun eru skilgreind fyrir iðnina, skal greiða þau ef upphæðin er hærri en sem nemur lögbundnum lágmarkslaunum. Laun skulu greidd með reglulegu millibili (að minnsta kosti mánaðarlega) og á réttum tíma. Starfsfólk skal fá ítarlegt yfirlit yfir laun á launaseðlum ásamt upplýsingum varðandi yfirvinnutíma og frádrátt.

Birgir skal halda launaskrá og skrá yfir mætingar fyrir allt starfsfólk að meðtöldu fólki í hlutastarfi og verktökum. Allur launafrádráttur þarf að vera samkvæmt samkomulagi á milli starfsmanns og launagreiðanda og þarf að koma fram í starfssamningi.

Birgir þarf að veita starfsfólki sínu öll þau hlunnindi sem lög kveða á um að þau eigi rétt á. Þar má nefna sjúkratryggingu, almannatryggingu, eftirlaun, o.s.frv. Birgir verður því stöðugt að viða að sér nýjustu upplýsingum um reglugerðir viðkomandi lands hvað þetta varðar.

Barnaþrælkun
Tiger líður engin form barnaþrælkunar. Tiger miðar við lágmarksaldur Alþjóðavinnumálastofnunarinnar sem er 15 ár. Í þeim tilfellum þar sem ósamræmi er á milli innlendra og alþjóðlegra laga skulu þau lög látin ráða sem teljast strengri. Ungir starfsmenn eru skilgreindir sem fólk á bilinu frá tilgreindum lágamarksaldri að 18 ára aldri. Ungir starfsmenn geta aðeins starfað við ákveðnar aðstæður þar sem gætt er að heilsu og öryggi þeirra og þeim er ekki heimilt að vinna yfirvinnu eða næturvinnu. Ef upp kemst um barnaþrælkun hjá okkur birgjum mun Tiger taka ábyrgð á því að bæta úr aðstæðum barnsins og heimili þess.    

Mismunun og viðurlög
Við líðum ekki mismunun gagnvart neinum á grundvelli kynþáttar, stéttar, kyns, þjóðernis, trúar, fötlunar, kynhneigðar, stéttarfélagsaðild, stjórnmálaskoðana eða aldurs. Allt starfsfólk skal þjálfað, ráðið, veitt stöðuhækkun og greitt eingöngu á grundvelli frammistöðu í starfi. Birgir skal ekki standa fyrir eða styðja líkamlegar refsingar; hótanir um ofbeldi; andlegar eða líkamlegar þvinganir; eða kynferðislega áreitni af nokkru tagi. Tiger samþykkir ekki að starfsmenn séu beittir pyntingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.

Félagafrelsi og rétturinn til kjarasamninga
Birgir skal virða rétt starfsfólks til að mynda og ganga til liðs við félög að eigin vali og styðja starfsfólk sem nýta rétt sinn til gerðar kjarasamninga. Tiger gerir sér grein fyrir að félagafrelsi getur líka þýtt að starfsfólki sé frjálst að kjósa að ganga ekki í stéttarfélag. Réttur til kjarasamninga er skilgreindur sem samningaviðræður á milli vinnuveitanda og fulltrúa starfsmanna sem starfsmenn hafa sjálfir kosið sjálfstætt og með frjálsum hætti. Vinnuveitendur skulu heimila óofbeldisfullar aðgerðir í tengslum við félagamyndun og baráttu fyrir bættum kjörum starfsmanna. Það ætti ekki að hafa neinar beinar eða óbeinar neikvæðar afleiðingar ef starfsmaður kýs að taka þátt eða hefja slíkar viðræður – þvert á móti skal vinnuveitandi styðja slíkar aðgerðir.

Í löndum þar sem lög koma í veg fyrir félagafrelsi og rétt til sameiginlegra samninga, skal vinnuveitandi auðvelda og ekki standa í vegi fyrir hliðstæðum leiðum sjálfstæðra og frjálsra samtaka og auðvelda skal öllu starfsfólki gerð samninga.

Heilsa og öryggi
Starfsumhverfi verður að vera heilsusamlegt og öruggt hvað varðar hávaða, hitastig, lýsingu, loftræstingu og almenna vinnuaðstöðu. Allir starfsmenn verða að hafa aðgang að hreinlætisaðstöðu og drykkjarvatni. Birgjar verður að tryggja að gistiaðstæður starfsmanna (ef birgir býður upp á slíkt) séu hreinar, öruggar og mæti grunnþörfum starfsmanna.

Birgir skal í fyrsta lagi alltaf byrja á að fyrirbyggja hættu eftir fremsta megni og í öðru lagi – sé ekki hægt að fyrirbyggja hana – skal hann draga úr henni og verja starfsmenn sína gegn váhrifum. Hættur geta falið í sér, en takmarkast ekki við, váhrif vegna hættulegra efna, véla eða aðgerða. Allt starfsfólk þarf að hafa aðgang að nauðsynlegum persónuhlífum (hönskum, grímum, heyrnarhlífum o.s.frv.) og allir starfsmenn verða að vera meðvitaðir um nauðsynlegar aðgerðir ef upp koma slys eða neyðartilfelli. Nauðsynlegt er að veita öllum starfsmönnum nauðsynlega þjálfun á sviði heilsu og öryggis en það telst lykilþáttur í heilbrigðis- og öryggisstjórnun.

Umhverfið
Birgir skal tryggja örugga meðhöndlun, geymslu og förgun á hráefni, efnum, úrgangi, skólpvatni og útblæstri. Birgjar verða að verða sér út um og uppfylla nauðsynlegar umhverfisskráningar, - leyfi og -réttindi. Úrgangur, hávaði, lykt og ryk frá framleiðslu skal takmarka eftir fremsta megni.

Rekjanleiki og gögn frá milliliðum
Tiger virðir heilindi sinna milliliða og rétt þeirra til að uppfylla skilyrði um samfélagsábyrgð (CSR) í samræmi við eigin gildi og stefnur. Milliliðir verða að sýna fram á skráða viðleitni við að uppfylla reglur um samfélagsábyrgð (CSR) í samræmi við alþjóðlegar kröfur hjá eigin fyrirtæki og í aðfangakeðjunni (supply chain). Mikilvægur þáttur í þessu er að geta rekið uppruna vörunnar. Svo við getum þekkt þær aðstæður sem viðkomandi vara var framleidd við, þurfa milliliðir okkar að geta rekið feril vörunnar til viðkomandi framleiðenda.

Menningarnæmi
Allir okkar birgjar verða að virða meginatriði okkar siðareglna (code of conduct). Hins vegar verður Tiger einnig að virða hefðir, menningu og gildi þeirra landa þar sem fyrirtækið starfar. Við eigum í opnum samræðum við fulltrúa um samfélagsábyrgð (CSR) á staðnum og verkefnastjóra og starfsfólk hjá okkar birgjum og leggjum mat á starfsemi birgja út frá því.
 

 

picture

Mynd úr verksmiðju söluaðila Tiger sem framleiða baðhanska. Úr eftirlitsheimsókn Tiger til birgja í mars 2011.

picture

Mynd úr eftirlitsheimsókn Tiger til birgja í Kína í mars 2011. Heimsóknir til birgja og í verksmiðjur þeirra er liður í eftirlitskerfi Tiger varðandi samfélagsábyrgð fyrirtækja (CSR). Með þessum heimsóknum fæst tækifæri til að hafa bein samskipti við birgjann og sjá af eigin raun hvort það sem söluaðilinn hefur gefið sig út fyrir að vera stenst. Tiger hefur fjölmarga birgja og því ómögulegt að heimsækja þá alla. En Tiger mun heimsækja þá stærstu á ólíku tímabili á tveggja ára fresti. Framleiðsluráð CSR-eftirlitsdeildarinnar hjálpar Tiger með CSR-ferlið. Eftirlitið fer stöðugt fram.